fimmtudagur, desember 22, 2005

Kvefuð jól

Ég þoli ekki kvef, þessa vikuna hef ég verið svo stíflaður af kvefi að ég hugsa ekki einu sinni rétt. Þegar vinkona mín sendi mér skrýtlu í dag þá mislas ég hana og hélt að botninn í henni væri einhver skrýtin auglýsing sem oft fylgir sms-um sem send eru gegnum vefgáttir símafyrirtækjanna og var síst að skilja hvaða ósmekklega fyrirtæki auglýsti með orðinum "Jólasveinninn er ekki til!"

Svo til þess að reyna að ná kvefinu úr mér gleypi ég núna eitthvað eðal amerískt kvefmeðal sem er með einhverri vafasömustu viðvörun sem ég hef séð á nokkrum lyfja pakka sem ekki krefst lyfseðils.

"If you consume 3 or more alcoholic drinks every day, ask your doctor wether you
should take acetaminophen or other pain relievers/fever reducers."


Ég verð nú að viðurkenna að í barnaskap mínum hélt ég að ef maður neytti að jafnaði 3 eða fleiri áfengra drykkja DAGLEGA þá væri líklega kominn tími til að athuga lífsmunstrið frekar en að hafa áhyggjur af kvefi og/eða hausverk, því sennilega væri mjög sennilega hægt að minnka líkur á hvorutveggja með þeirri einföldu aðgerð að minnka drykkjuna.

Annars verð ég nú að viðurkenna að mér finnst voða lítið orðið jólalegt :( það er kannski svolítið sökum þess að nú bý ég í nýju húsi og það eru ekki nema 2 dagar síðan eldhúsinnréttingin var kláruð svo að eldhúsið var formlega tekið í notkun í kvöld og svo eru kassar og drasl úti um allt, svo nú ætla ég að halda áfram að reyna að koma húsinu í skikkanlegt ástand fyrir jólin og mögulega kemst maður í eitthvað jólaskap fyrir miðnætti annað kvöld.

Hafið það gott og gleðileg jól