fimmtudagur, október 20, 2005

Bjór, bjór, bjór

Sennilega mundi nú líða yfir mig ef ég drykki þyngd mína í bjór
To drink my weight, I would have to chug 241 bottles of beer!
How big is your beer
belly?

Powered by the mighty Rum and Monkey.

en þetta er nú ekkert minna skemmtileg staðreynd fyrir því, ég gæti kannski reynt að framkvæma þetta annað kvöld í vísindaferðinni :P

miðvikudagur, október 19, 2005

Tónlist í brjóstin já!

Samkvæmt þessari frétt Ananova - Musical breast implants þá geta konur í framtíðinni fengið mp3 spilara í brjóstin með silikoninu :P

Held ég hafi nú bara aldrei heyrt annað eins bull. Þetta hlýtur að geta valdið óþægindum, og hvað með okkur karlana fáum við ekki svona eða getum við bara hækkað tónlistina í botn á konunni þegar við erum í rúminu með henni :P En þetta býður samt upp á marga sniðuga möguleika.

En spurning hvernig STEF og Ríkislögreglustjóri ætla að gera búnaðinn upptækan meðan rannsókn á hugverkastuldi færi fram efast um að það væri auðvelt að fá leyfi til að rannsaka mp3 spilarann mjög nákvæmlega þar sem það gæti flokkast sem kynferðisleg áreitni!

Allt dettur mönnum í hug

Nú skil ég afhverju svona margar stelpur passa börn

Því hér eru kynlífssöguklysjur internetsins. Þetta er semsagt samsafn af helstu klysjum úr dónasögum netverja. Merkilegt hvað það er margt þarna sem virðist ná að halda lífi þó svo að hver heilvita manneskja ætti að sjá að það gengur ekki upp.

mánudagur, október 17, 2005

Sko menn með þetta gáfnafar ættu nú bara að vera til sýnis.

Neowin.net - Neowin's Strange News of the Week: Note to self.....

Nú þykist maður vera byrjaður aftur að blogga :P

Jæja, nú hef ég ekki lengur afsökun fyrir að hafa ekki postað neinu hér inn. Skellti þessu bara hérna inn á blogspot til að geta tjáð mig þó svo að vefsvæðið mitt sé í lamasessi, svo flytur maður þetta bara aftur heim þegar ég er búinn að skrifa nýja vefsvæðið mitt :D

En þar til ég verð búinn að því verða allir broskallarnir í textanum týndir.