mánudagur, október 31, 2005

Samsæriskenningar af "bestu sort"

Nú er það þannig að í gegnum tíðinna hef ég hitt fyrir menn sem leita sér að samsærirkenningum af öllum gerðum og finna sig knúna til að segja mér af þeim af mikilli innlifun og eru þess handvissir að kenningarnar séu hinn heilagi sannleikur. Þetta, Captain's Blog, hins vegar rakst ég á áðan og verð ég að segja að þessi kappi held ég að toppi allar kenningar sem ég hef heyrt fram að þessu.

Hann hefur líka greinilega "overdoze-að" á nördahættinum og telur sig vera skipherra einhverrar kynslóðar af geimskipinu Enterprise, sem Star Trek nördar ættu að þekkja vel, það er nú eitt að hafa gaman af ævintýrum og vísindaskáldsögum, jafnvel að láta sig dreyma um hvernig væri að lifa í slíkum heimi en að vera þess fullviss að maður geri það er "too much" allavega fyrir mína parta.

Hins vegar held ég að þeir á veðurstofunni hefðu nú ekkert á móti að geta stjórnað veðrinu, þá gætu þeir haft snjó á skíðasvæðum allt árið, hlýtt og vindalítið í þettbýli og það veður sem hentar bændum í dreifbýli, þá væri sko gaman að lifa. Miðað við þessa samsæriskenningu þá virðast það vera Mexíkóbúar sem ráða yfir þessari frábæru tækni, hvernig væri að senda nefnd frá veðurstofunni til Mexíkó að semja um afnot að þessum búnaði :D

Svona allir út að leika í góða veðrinu

AdSense

Ákvað að prófa AdSense og sjá hvernig það höndlar íslenskuna þar sem það er ekki gefið upp að velja íslensku þegar maður sækir um :P

Uppfærsla: AdSense vildu ekki samþykkja íslensku sem kemur mér ekki á óvart en það mátti reyna :P

Bleikt og Blátt /b&b / NÝTT Bleikt & blátt

Jæja ég var að fá í hendurnar nýjustu útfærsluna af hinu góðkunna blaði Bleikt og blátt en nú hefur því heldur betur verið breytt í þá mynd sem rauðsokkur réðust gegn fyrir rúmu ári síðan. Því nýja blaðið er orðið að argasta klámblaði, ekki að ég hafi neitt að því að fá blað sem fjallar um kynlíf inn um lúguna hjá mér.

Mér finnst bara fyndið að þegar Fróði breytti um stefnu á blaðinu og gerði það mildara réðust kvennréttindakonur gegn því með þeim orðum að þær vildu ekki þurf að horfa á klám þegar þær versluðu sér í matinn (tek mér höfundarleyfi til að umorða þetta smá), allt gott og blessað með það en greinilega er það bara þannig að eina útgáfan á þessu blaði sem selst er klámútgáfa.

Ég tek bara undir með liðsmönnum Bloodhound Gang og segi "Hooray For Boobies"

Hver man ekki eftir Carmen Sandiego

Ef þú spilaðir "Were in the World is Carmen Sandiego" sem krakki, og jafnvel ef þú spilaðir hann ekki, þá gætiru haft gaman að þessu Brewster Jennings Protects America: The Google Map Hunt Game þarna er búið að búa til samskonar leik ofan á Google Maps, algjör snilld og getur eflaust verið hressilegur tímaþjófur.

Skemmtið ykkur