Þetta, Rizzo Pizzeria, held ég að verði að flokkast með verri hönnun á vefsíðum sem ég hef rekist á lengi, en einn skólafélagi minn benti mér á þetta í haust og ég er ekki ennþá farinn að fatta hvað mönnum gengur til með þessu. Matseðillinn er til þess að gera vel uppsettur en hvernig væri að setja einhverjar frekari upplýsingar eins og til dæmis hvar þeir eru til húsa og hvað síminn hjá þeim er þannig að maður geti nú pantað sér pizzu hjá þeim en þetta eru með betri pizzum sem ég hef smakkað, eldbakaðar og fínar. En svona til að þú lesandi góður getir sannfærst um að þetta séu góðar pizzur ætla ég að láta fylgja hér símann hjá þeim ásamt heimilisfangi.
Síminn er 5-777-000 og eru þeir til húsa í Hraunbæ 121, ég mæli með að þið prófið þessar næst þegar ykkur langar í pizzu þær eru snilld :D
PS. ætli maður geti fengið þóknun fyrir að koma þessum upplýsingum á framfæri, mér þætti ekkert leiðinlegt að fá svona eins og eina pizzu fyrir að upplýsa fólk um þetta :P
mánudagur, janúar 02, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ef þetta væri bara hreint pdf skjal sem væri template-ið fyrir matseðilinn þá myndi ég segja að þetta væri allt í lagi. En eins og er þá er þetta bara fyndið og jafnframt sorglegt að þeir séu að sóa fjármuni í að halda úti síðu sem gerir þeim lítið sem ekkert gagn.
Takk fyrir hjálpina, er búin að vera símanúmerinu í heila eilífð. Þeir vita ekki hvað það er að vera svangur:) Gott að einhver hugsar fyrir þá.
Ég meina auðvitað að leita að símanúmerinu!!!!!!!!
Skrifa ummæli